
Uppfærsla símahugbúnaðar með símanum
Viltu auka afköst símans og fá hugbúnaðaruppfærslur og nýjar og skemmtilegar
aðgerðir? Uppfærðu hugbúnaðinn reglulega til að fá sem mest út úr símanum. Einnig
er hægt er að stilla símann á að leita sjálfkrafa að uppfærslum.
Viðvörun:
Ekki er hægt að nota tækið, jafnvel ekki til að hringja neyðarsímtöl, fyrr en
uppfærslunni er lokið og tækið hefur verið endurræst.
Við notkun þjónustu eða niðurhal efnis getur þurft að hlaða niður miklu gagnamagni
og greiða fyrir gagnaflutning.
Áður en uppfærslan er ræst skaltu tengja hleðslutækið eða ganga úr skugga um að
rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu.
40
Símastjórnun

Veldu
Valmynd
>
Stillingar
.
1 Veldu
Símastillingar
>
Uppfærslur
.
2 Veldu
Nýjustu hugb.upplýs.
til að sjá núverandi útgáfu hugbúnaðarins og athuga
hvort hægt er að fá hann uppfærðan.
3 Veldu
Sækja símahugb.
til að hlaða niður og setja upp uppfærslu á hugbúnaði.
Fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.
4 Ef hætt var við uppsetningu að niðurhali loknu velurðu
Setja upp uppf.
.
Uppfærslan getur tekið nokkrar mínútur. Hafðu samband við þjónustuveituna ef þú
átt í vandræðum með uppfærsluna.
Sjálfvirk leit að hugbúnaðaruppfærslum
Veldu
Sjálfv. uppfærsla
og tilgreindu hve oft skal leita að nýjum
hugbúnaðaruppfærslum.
Þjónustuveitan kann að senda þér uppfærslu á hugbúnaði símans, þráðlaust beint í
símann. Nánari upplýsingar um þessa sérþjónustu fást hjá þjónustuveitunni.