
SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir
Mikilvægt: Þetta tæki er aðeins ætlað til notkunar með venjulegu SIM-korti (sjá
mynd). Ef ósamhæf SIM-kort eru notuð gæti það skaðað kortið eða tækið og gæti
skemmt gögn sem vistuð eru á kortinu. Fáðu upplýsingar hjá símafyrirtækinu um
notkun SIM-korta með mini-UICC straumloka.
Tækið tekið í notkun
5

Þessi sími er ætlaður til notkunar með BL-4U rafhlöðu. Notið alltaf rafhlöður frá Nokia.
SIM-kortið og innihald þess getur hæglega orðið fyrir skemmdum ef það er rispað eða
beygt svo fara skal varlega þegar það er meðhöndlað, sett inn og tekið út.
1 Settu fingurinn í opið á hlið símans og taktu bakhliðina varlega af honum. Ef
rafhlaðan er í tækinu skal fjarlægja hana
2 Renndu SIM-kortahöldunni til að opna hana og notaðu nögl til að lyfta henni.
3 Gættu þess að snertiflötur SIM-kortsins snúi niður og komdu kortinu fyrir í
kortahöldunni. Renndu höldunni til að læsa henni
6
Tækið tekið í notkun

4 Gættu þess að rafskaut rafhlöðunnar nemi við tengi rafhlöðuhólfsins og settu
rafhlöðuna á sinn stað. Til að setja bakhliðina aftur á tækið skaltu beina neðri
lásunum að raufunum (1) og ýta svo niður þar til hún smellur á sinn stað (2).